RVK BBQ Festival 2026

Hátíðin

FYRSTA BBQ- OG REYKMATARHÁTÍÐIN Á ÍSLANDI

Reykjavík BBQ Festival er fyrsta hátíðin á Íslandi sem leggur áherslu á BBQ-menningu, reykgrillun og matarmarkaði tengt bbq vörum. Hátíðin fer fram 30–31 maí 2026 í Kolaportinu við Tryggvagötu í Reykjavík.

Á hátíðinni mæta bestu grillarar landsins til að keppa um titilinn Grillmeistari Íslands 2026. Gestir geta fylgst með grillurnum í beinni, og kynnst BBQ-menningunni í heild sinni.

Samhliða keppninni er opinn matarmarkaður þar sem söluaðilar bjóða upp á allt frá BBQ-sósum og kjötvörum til meðlæta. Weber — aðalsamstarfsaðili hátíðarinnar — verður með sérstakt sýningarsvæði þar sem gestir geta kynnt sér nýjustu grillin.

Helstu upplýsingar

Dagsetning

30–31 maí 2026

Staðsetning

Kolaportið, Tryggvagata 19, Reykjavík

Gestir

Hundruðir BBQ-áhugamanna

BBQ Matarmarkaður

Söluaðilar kynna og selja vörur tengdar bbq og grillun

Grillarar

Bestu grillarar landsins

Framkvæmdaraðili

Götubitinn Reykjavík

GÖTUBITI EHF —
YFIR 1.000 VIÐBURÐIR

Götubiti ehf er framkvæmdaraðili Reykjavík BBQ Festival. Fyrirtækið hefur staðið að yfir 1.000 viðburðum í gegnum árin og er eitt þekktasta viðburðafyrirtæki landsins á sviði matarmenningar og götumatar.

Með djúpa þekkingu á skipulagningu matarviðburða, tengslum við bestu framleiðendur og reynslu af því að taka á móti þúsundum gesta, er Götubiti ehf vel í stakk búið til að koma þessari hátíð á laggirnar.

Reykjavík BBQ Festival útisvæði

Reynslusaga

HELSTU VIÐBURÐIR
Í GEGNUM ÁRIN

Götubiti ehf hefur skipulagt fjölda stórra viðburða í Reykjavík og víðar — hér eru nokkrir þeirra þekktustu:

01

Götubitahátíðin í Hljómskálagarðinum

Einn stærsti matarviðburður Reykjavíkur — þar sem bestu götubitastaðir landsins safnast saman í hjarta borgarinnar.

02

Menningarnótt í Hljómskálagarðinum

Árleg þátttaka í Menningarnótt — matarmarkaður og stemning í miðborg Reykjavíkur.

03

17. júní — Þjóðhátíðardagurinn

Matarmarkaður og viðburðir á þjóðhátíðardegi Íslendinga, með þúsundum gesta á hverju ári.

04

Götubiti á hjólum

Farsælt food truck verkefni sem hefur tekið matarmenninguna út á veginn um allt land.

Taktu þátt

VERTU HLUTI AF HÁTÍÐINNI