
KYNNIR
Fyrsta BBQ og reyk matarhátíðin á Íslandi.
UM HÁTÍÐINA
RVK BBQ Festival er fyrsta alvöru BBQ og reyk matarhátíðin á Íslandi — innblástur frá Meatopia London og stóru BBQ hátíðunum í Bandaríkjunum, en með íslensku sniði og hágæða hráefni.
Bestu BBQ-grillarar landsins grilla á útisvæðinu norðan við Kolaportið. Inni er veitingasvæði, Weber grill-sýning, BBQ-matarmarkaður og keppnin um Grillmeistara Íslands 2026.
Hátíðin er opin öllum — fjölskyldum, BBQ-áhugafólki og þeim sem vilja einfaldlega njóta góðs matar og góðrar stemningar.

30–31
Maí 2026
SVÆÐIN
NORÐAN MEGIN
Bestu BBQ-grillarar landsins grilla á Weber í fullu fjöri á útisvæðinu. Reykurinn og ilmurinn svífur um svæðið.
VEITINGASVÆÐIÐ
Frábært veitingasvæði í Kolaportinu með bekki og borð fyrir gesti. Weber-sýning inni og skemmtilegt úrval af drykkjum.
INNI
Íslenskur handverksbjór og vel valdir drykkir sem passa fullkomlega við BBQ-upplifunina.



WEBER GRILL
Weber er aðalsamstarfsaðili RVK BBQ Festival. Heimsþekkt grillmerki sem hefur verið í fararbroddi BBQ-menningar í áratugi. Á hátíðinni verður Weber með sérstakt sýningarsvæði í Kolaportinu þar sem gestir geta kynnt sér nýjustu grillin og fengið ráðgjöf frá sérfræðingum.

Skoðaðu úrvalið
í Kolaportinu
BBQ MATARMARKAÐUR
Inni í Kolaportinu er sérstakur BBQ-matarmarkaður þar sem fjöldi sölubása selur allskyns vörur og hráefni fyrir grillið. Markaðurinn er opinn báða daga hátíðarinnar — hvort sem þú ert að leita að nýjum kryddum, hágæða kjöti eða nýjum grilltækjum, hér finnurðu það.

20+ Sölubásar & Framleiðendur
Hágæða nautakjöt, svina- og lambakjöt, marineringar og sérvaldar skurðir — beint frá sláturmönnum og framleiðendum.
Handgerðar BBQ-sósur, dry rubs og kryddblöndur frá innlendum og erlendum framleiðendum.
Allt sem passar með BBQ: handgert coleslaw, pickles, brauð og önnur meðlæti sem lyfta upplifuninni.
Hitamælar, smoker chips, grillburstar og alls kyns fylgihlutir fyrir grillið.
Viltu vera seljandi?
Við erum að taka við umsóknum frá sölubásum. Haðu samband ef þú vilt selja á BBQ-matarmarkadinum.

GRILLMEISTARAKEPPNI
Á hátíðinni verða bestu grillarar landsins saman komnir. Ef þú telur þig vera besta grillara landsins — sæktu um þátttöku hér að neðan. Weber útvegar grillin og kjötið er hægt að fá í gegnum samstarfsaðila okkar.
STEMNING HÁTÍÐARINNAR






SAMSTARFSAÐILAR

AÐALSAMSTARFSAÐILI
Heimsþekkt grillmerki. Sýning á nýjustu grillum og tækni inni í Kolaportinu.

DRYKKJARSAMSTARFSAÐILI
Íslenskur handverksbjór sem passar fullkomlega við BBQ-upplifunina.

SKIPULEGGJANDI
Reynsla af bestu matarhátíðum landsins — Götubitahátíðin í Hljómskálagarðinum og fleiri.
Viltu vera með?